

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra fundaði í dag með Samtökum fyrirtækja í veitingarekstri (SVEIT), sem hafa lýst yfir mikilli óánægju með framtíðarsýn sóttvarnalæknis. Hún ætlar að ræða hugmyndir að lausnum við ríkisstjórnina sem komu fram á fundinum til að hafa opið lengur í bænum.
Kennari í þriðja bekk í Fossvogsskóla tekur það ekki í mál að kenna börnum frammi á gangi í tengibyggingu Víkingsheimilisins. Hún kveðst þó meira en tilbúin til að kenna í húsnæði Hjálpræðishersins, sem bauð Reykjavíkurborg afnot af byggingunni undir skólastarfið í dag, og er bjartsýn á næstu vikur.
Ásgrímur Helgi Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Fram, segir félagið hafa sett sér það markmið að komast upp í efstu deild áður en gengið yrði frá flutningi félagsins úr Safamýri í Úlfarsárdal. Það tókst í gær er liðið tryggði sæti sitt í Pepsi Max-deild karla að ári.
Reykjavíkurborg hefur gefið foreldrum barna í 2. til 4. bekk í Fossvogsskóla þrjá valmöguleika í von um að leysa þann húsnæðisvanda sem þar er kominn upp. Foreldrar lýstu í gær yfir óánægju sinni með borgina eftir að í ljós kom að kenna átti börnunum í tengibyggingu Víkingsheimilisins, meðal annars frammi á gangi, fyrstu vikur skólaársins. Þeim þótti þetta með öllu ótæk ráðstöfun.
Eldur kviknaði í bíl á Kringlumýrarbraut fyrir utan Suðurver rétt um klukkan hálf sex. Slökkvilið er á staðnum og hefur tekist að slökkva í bílnum.
Hin nítján ára gamla Zara Rutherford, sem ætlar sér að verða yngsta kona sögunnar til þess að fljúga einsömul hringinn í kringum jörðina, lenti á Reykjavíkurflugvelli nú síðdegis.
Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar, segist skilja reiði foreldra í Fossvogsskóla með ráðstafanir borgaryfirvalda þegar kemur að því að koma börnunum fyrir. Hart hefur verið deilt á að til standi að nota Víkingsheimilið til kennslu, sem mörgum þykir óviðunandi.
Aðstandendur Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka hyggjast ekki endurgreiða þeim sem keypt höfðu miða í hlaupið, eftir að hlaupinu var endanlegt aflýst í dag.
Skólaráð Fossvogsskóla hefur verið boðað til fundar í dag klukkan 17. Þar má búast við að húsnæðisvandi skólans verði til umræðu en eins og Vísir greindi frá eru foreldrar afar ósáttir með að yngsta stig skólans fái kennslu sína á neðstu hæð Víkingsheimilisins fram á miðjan september. Forsvarsmenn Víkings harma að hafa dregist inn í neikvæða umræðu í fjölmiðlum.
Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2021 hefur verið aflýst í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur. Þar segir að álagið á samfélagið sem og heilbrigðiskerfið hafi verið mikið og mikil óvissa sé ennþá um framhaldið.
Grípa hefur þurft til ýmissa ráðstafana til að tryggja að allir nemendur í Réttarholtsskóla í Reykjavík geti mætt þegar nýtt skólaár gengur í garð eftir helgi vegna framkvæmda við skólann sem nú standa yfir.
Málefni Fossvogsskóla hafa verið mér hugleikin síðan ég varð borgarfulltrúi fyrir þremur árum. Meðal fyrstu pósta sem voru sendir til mín voru póstar frá áhyggjufullum foreldrum, síðan eru liðin þrjú ár og áfram streyma til mín póstar frá áhyggjufullum foreldrum í Fossvogi.
„Umrætt húsnæði er fullkomlega óboðlegt sem kennsluhúsnæði og lýsir valið á húsnæðinu dómgreindarleysi skólayfirvalda á þörfum barna og starfsfólks í námi og starfi. Mál er að linni.“ Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Foreldrafélagi Fossvogsskóla þar sem „neyðarástand í húsnæðismálum 2. til 4. bekkjar i Fossvogsskóla“ er til umræðu.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti 142 sjúkraflutningum í gær. Í Facebookfærslu slökkviliðsins segir að fyrir nokkrum vikum hefðu svo margir sjúkraflutningar þótt til tíðinda en nú sé sá fjöldi „normið.“
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í morgun eftir að mikill eldur hafði komið upp í grilli við hús sem stendur við Hringbraut.
Tilkynnt var um rán úr verslun í Hafnarfirði klukkan 03:40 í nótt.
Listakonan Rakel Tomas opnar sýninguna Hvar ertu? næsta föstudag á vinnustofu sinni og sýningarrými á Grettisgötu 3. Til sýnis verða um tuttugu ný verk sem Rakel segir hafa farið í allt aðra átt en hún átti von á við upphaf ferlisins.
Er öllum sama um börnin og kennarana í Fossvogsskóla? Að þessu spyr foreldri tveggja barna í skólanum sig í harðyrtri færslu á Facebook þar sem hún gagnrýnir framferði Reykjavíkurborgar í málinu, sem hún segir hafa logið, svikið og verið með hortugheit.
Framtíðarsýn sóttvarnalæknis næstu misseri: Opið til ellefu í bænum. Það er dauðadómur fyrir ákveðna rekstraraðila, segir bareigandi.
Starfsmaður á leikskólanum Sælukoti í Reykjavík hefur verið sakaður um ofbeldi í garð barns við skólann. Þetta staðfestir María Ösp Ómarsdóttir leikskólastjóri Sælukots í samtali við fréttastofu en hún veit ekki til þess að málið hafi verið kært til lögreglu.
Eitt barn á leikskólanum Álftaborg í Safamýri hefur greinst smitað af kórónuveirunni. Börn og starfsmenn voru send í sóttkví eftir að starfsmaður greindist smitaður á föstudaginn.
Ari Kristinn Jónsson, fráfarandi rektor Háskólans í Reykjavík, mun taka við starfi forstjóra netöryggisfyrirtækisins AwareGO um mánaðarmótin. Hann tekur við starfinu af Ragnari Sigurðssyni, einum stofnanda fyrirtækisins.
Rétt fyrir klukkan tvö í nótt voru tvær bifreiðar stöðvaðar á Miklubraut eftir að hafa mælst á 157 kílómetra hraða á klukkustund en hámarkshraði á Miklubraut er 80 kílómetrar á klukkustund.
Ákveðið hefur verið að fresta Litahlaupinu, The Color Run, sem átti að fara fram þann 28. ágúst næstkomandi fram til næsta sumars vegna samkomutakmarkana. Vonast er til að hægt verði að halda hlaupið samkomutakmarkanalaust í júní á næsta ári.
„Fólk vill komast út og gera og heyra og vera til og lifa einhverskonar lífi,“ segir Viktoría Blöndal sem stendur fyrir upplestrarkvöldi í miðbæ Reykjavíkur á fimmtudag.
Víða er enn heitavatnslaust í Vesturbænum en vatnið átti að koma aftur á klukkan 16 í dag. Það var tekið af í morgun til að tengja lagnir fyrir nýja Landspítalann en ætti að vera komið aftur á hjá flestum fyrir klukkan 20 í kvöld.
„Það eru einhverjir sem verða fyrir engum áhrifum af þessum myndum en í flestum tilfellum eru þessar myndir að sýna myndir af feitum líkama fyrir og svo stæltari og grennri líkama eftir.“ segir Aldís Eva Friðriksdóttir sálfræðingur um svokallaðar fyrir og eftir myndir.
Gríðarlega löng röð myndaðist fyrir utan húsnæði heilsugæslunnar við Suðurlandsbraut í dag. Nú rétt eftir hádegi höfðu tvö þúsund manns skráð sig í sýnatöku í dag og finnur Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, formaður hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, fyrir aukinni aðsókn.
Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að heilsugæslan myndi þiggja betri mætingu á meðal þeirra sem hafa verið boðaðir í örvunarskammt.
Tveir vistmenn á áfangaheimilinu Vernd greindust með Covid-19 um helgina. Þeir voru í kjölfarið fluttir á sóttvarnahús auk átján annarra vistmanna sem komnir eru í sóttkví. Starfsfólk Verndar er jafnframt komið í heimasóttkví.