KR

KR

Fréttir af Knattspyrnufélagi Reykjavíkur, KR, frá Reykjavík.

Fréttamynd

Fram - KR | Hörð bar­átta um annað sætið

Hér fer fram textalýsing frá leik Fram og KR í þriðju umferð efri hluta Bestu deildar karla í fótbolta. Aðeins eitt stiig er á milli liðanna og er mikilvægt fyrir liðin að enda í öðru sæti fyrir Evrópukeppni á næsta ári. Flautað verður til leiks á Lambhagavellinum klukkan 19:15. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 3.

Íslenski boltinn

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Það er aldrei logn­molla í kringum Óskar“

Mikil barátta er um annað sætið í Bestu deild karla og mætast liðin í þeirri baráttu í kvöld. KR er sem stendur í öðru sæti deildarinnar en liðið fer í heimsókn til Fram í kvöld þar sem Framarar eru einu stigi fyrir neðan KR í þriðja sætinu.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Náðum að auka tempóið í seinni hálf­leik“

Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, var sáttur við kafla í leik sinna manna þegar liðið bar sigurorð af Grindavík í fyrstu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. Seinni hálfleikurinn og tempóið þar hafi verið meira að hans skapi. 

Körfubolti
Fréttamynd

Óðinn heim í KR

Óðinn Bjarkason hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í morgun.

Sport
Fréttamynd

Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum

Fimmtán og sextán ára stelpur úr KR og HK fengu medalíur merktar strákum eftir úrslitaleik sinn í Vesturbænum í gær, í Íslandsmóti B-liða í 3. flokki. Framkvæmdastjóri KSÍ biður leikmenn og félögin afsökunar en þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem mistök verða í verðlaunaafhendingu hjá íslenskum fótboltastelpum.

Fótbolti
Fréttamynd

Sárnar að vera bendlaður við líkams­á­rás

Zoltán Belányi, sundþjálfara hjá KR, sárnar að hafa ítrekað verið tengdur við líkamsárás í síðustu viku. Hann er ekki viðriðinn málið og segir að tengingin sé skaðleg fyrir mannorð sitt og orðspor.

Innlent
Fréttamynd

Mattías Kjeld valdi KR

Mattías Kjeld hefur skrifað undir þriggja ára samning við Bestu deildar lið KR og gengur í raðir félagsins frá Gróttu eftir að hafa heillað í Lengjudeildinni á nýafstöðnu tímabili.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu

Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, sér ekki eftir því að hafa talað digurbarkalega nú þegar að Víkingur Reykjavík hefur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Framherji Víkinga skaut á Aron á samfélagsmiðlum eftir að titillinn var í höfn.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Stór dagur fyrir Otte­sen fjöl­skylduna

„Þetta er titill undir,“ segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, um leik dagsins við KR í Bestu deild karla. Víkingur verður Íslandsmeistari með sigri. Sonur Sölva á þá fyrir höndum úrslitaleik á Laugardalsvelli.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Ég ýtti bara að­eins við honum“

Oliver Ekroth, fyrirliði Víkings, segir atvik líkt og það sem varð milli hans og Arons Sigurðarsonar, fyrirliða KR, í síðasta leik liðanna vera hluti af leiknum. Liðin mætast aftur í dag og Víkingur verður meistari með sigri.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

KR-ingar harma sundátökin: „Mikil­vægt að við hlúum hvert að öðru“

Alvarlegt atvik sem kom upp í gær, þar sem sundþjálfari hjá KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á kollega sinn, er á afar viðkvæmu stigi. Það er einnig í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu. Í tölvupósti frá félaginu segir að nú sé mikilvægt að sýna samhug og hlúa hvert að öðru.

Innlent
Fréttamynd

Sund­þjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sund­fólks

Sundþjálfari hjá KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á kollega sinn hjá Gróttu fyrir stefnumótunarfund Sundsambands Íslands í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær. Forseti ÍSÍ lítur málið alvarlegum augum og hlúði að sundþjálfaranum sem slasaðist á vettvangi.

Innlent