Golf

Allenby meiddist við fiskiveiðar

Elvar Geir Magnússon skrifar
Robert Allenby.
Robert Allenby.

Robert Allenby eyddi tveimur vikum á fullum krafti á líkamsræktarstöðvum og golfvellinum til að gera sig kláran fyrir síðasta stórmót ársins. Saklaus veiðiferð kemur þó í veg fyrir að hann geti tekið þátt.

Allenby, sem er í fjórtánda sæti heimslistans, meiddist á hné þegar hann var að veiða á báti á Bahamas. Hann rann til á bátnum með þessum afleiðingum.

Hann fór í aðgerð og verður frá í þrjár vikur. Ljósi punkturinn er sá að meiðslin urðu á hægri fæti hans en fyrir rétthentan golfara er það vinstra hnéð sem ber mestan þunga.

„Ef ég lít á björtu hliðarnar þá náði ég allavega að veiða fisk. Nú hef ég þrjár vikur til að matreiða hann," sagði Allenby.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×