Golf

Íslenska golflandsliðið í 26. sæti fyrsta dag á HM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenska karlalandsliðið í golfi.
Íslenska karlalandsliðið í golfi. Mynd/golf.is

Íslenska karlalandsliðið í golfi er í 26. til 32. sæti eftir fyrsta dag í Heimsmeistarakeppni karlalandsliða í golfi sem hófst í gær í Argentínu.

Íslenska liðið lék á 147 höggum eða fimm yfir pari og er tíu höggum á eftir Frökkum sem eru í efsta sæti. Ólafur Loftsson úr NK lék á 73 höggum, Hlynur Geir Hjartarson úr GK lék á 74 og Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR á 75 höggum.

Íslenska liðið er í ráshóp með Bandaríkjunum og Argentínu á öðrum deginum í dag. Keppnisdagarnir eru fjórir eða frá fimmtudegi til sunnudags, hver leikmaður spilar fjóra 18 holu einn hvern dag, tvö bestu skor dagsins hjá hverju liði telja.

„Við misstum aðeins dampinn á seinni níu eftir þokkalegt gengi á fyrri en Hlynur endaði á fugli og Óli á erni þannig að útkoman varð betri á horfðist.  Hlynur var að leika gott golf frá teig á flöt en púttin aðeins að stríða honum í dag," sagði Ragnar Ólafson, liðsstjóri, í samtali við golf.is.

"Það verður spennandi dagur á morgun með heimamönnum og USA, eina sem skyggir á þetta er veðurspáin en gert er ráð fyrir stormi á morgun," sagði Ragnar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×