Golf

Darren Clarke djammaði í alla nótt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Clarke á blaðamannafundinum í morgun.
Clarke á blaðamannafundinum í morgun. Nordic Photos/AFP
Norður-Írinn Darren Clarke, sigurvegari á Opna breska meistaramótinu í golfi, var þreytulegur að sjá þegar hann mætti á blaðamannafund í Sandwich í morgun. Ástæðan var ekki sú að Clarke var andvaka eftir sigurinn heldur stóðu fagnaðarlætin fram á morgun.

„Ég hef horft á bikarinn í alla nótt og er að átta mig á því að hann sé minn," sagði þreytulegur Clarke á blaðamannafundinum í morgun.

„Ég sef líklega ekkert fyrr en á morgun. Maður verður að njóta þess meðan maður getur. Ég drakk þónokkur glös af bjór og þónokkur af rauðvíni og gamaninu lauk fyrir 30 mínútum. Þetta var mjög skemmtileg nótt," sagði Clarke.

Clarke neitaði því að hann hefði drukkið úr bikarnum sjálfum.

„Mér finnst skrýtið að setja eitthvað í bikarinn sem á ekki heima þar. Það er ekkert í honum ennþá. Það gæti þó breyst eftir því sem líður á vikuna," sagði Clarke léttur við fréttamenn.

Clarke tileinkaði sigurinn sonum sínum tveimur, Tyrone og Conor í Portrush á Norður-Írlandi, ásamt eiginkonu sinni Heather sem lést árið 2006 eftir baráttu við brjóstakrabbamein.

„Tyrne var mjög ánægður, mjög stoltur. Hann sagðist ætla að segja öllum að pabbi sinni hefði unnið Opna breska. Conor vildi vita í hvað hann gæti varið öllum peningnum. Þannig að viðbrögð þeirra voru misjöfn, en báðir mjög ánægðir."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×