Golf

Tiger fær milljarða vegna golfvallar sem ekki er búið að byggja

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger á fyrir salti í grautinn.
Tiger á fyrir salti í grautinn.

Viðskiptatímarít í sameinuðu arabísku furstadæmunum greinir frá því í dag að Tiger Woods hafi fengið tæplega 6,5 milljarða íslenskra króna fyrir að auglýsa golfparadís sem ekki er enn búið að byggja.

Tímaritið segist hafa séð skjöl sem staðfesti þetta. Golfvöllinn á að byggja í nýju hverfi sem í verða aðeins glæsihýsi og hallir.

Woods er að spila í Dubai og hann neitaði að tjá sig um samninginn þegar á hann var gengið. Hann sagðist þó ætla að funda með hópnum meðan hann væri í Dubai.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×