Fótbolti

Guðný Björk á skotskónum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Margrét Lára Viðarsdóttir var kjörinn besti leikmaður Íslandsmótsins árið 2006 og Guðný Björk Óðinsdóttir efnilegust. Með þeim á myndinni eru Viktor Bjarki Arnarsson og Birkir Már Sævarsson.
Margrét Lára Viðarsdóttir var kjörinn besti leikmaður Íslandsmótsins árið 2006 og Guðný Björk Óðinsdóttir efnilegust. Með þeim á myndinni eru Viktor Bjarki Arnarsson og Birkir Már Sævarsson. Mynd/Daníel
Guðný Björk Óðinsdóttir skoraði síðara mark Kristianstad í 2-1 útisigri á Mallbacken í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Mark Guðnýjar kom gestunum í 2-0 en markið kom eftir hornspyrnu. Heimakonur minnkuðu muninn skömmu fyrir leikslok en sigur Kristianstad í höfn.

Margrét Lára Viðarsdóttir og Sif Atladóttir voru í byrjunarliði Kristianstad sem Elísabet Gunnarsdóttir stýrir. Guðný Björk kom inn á fyrir Margréti Láru á 61. mínútu.

Kristianstad hefur fjögur stig eftir tvo leiki í toppsæti deildarinnar. Flest liðin í deildinni hafa þó aðeins leikið einn leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×