Golf

Birgir Leifur í 12.-15. sæti í Danmörku

Birgir Leifur er á meðal keppenda á Swiss Challenge sem hefst á fimmtudaginn.
Birgir Leifur er á meðal keppenda á Swiss Challenge sem hefst á fimmtudaginn. vísir/getty
Birgir Leifur Hafþórsson endaði í 12.–15. sæti á Nordic League atvinnumótaröðinni sem fram fór um helgina. Kitchen Joy meistaramótið fór fram á H. C. Andersen vellinum í Danmörku. Birgir, sem er sexfaldurÍslandsmeistari í golfi, lék hringina þrjá á 5 höggum undir pari vallarins samtals (70-72-69). Hann var sjö höggum á eftir Svíanum Per Barth sem sigraði á 12 höggum undir pari samtals. 

Birgir Leifur er með takmarkaðann keppnisrétt á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, Áskorendamótaröðin, og bíður hann eftir tækifæri til þess að fá að spreyta sig á þeirri mótaröð. Hann er á biðlista fyrir hvert einasta mót en samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Europeantour er Birgir Leifur á meðal keppenda á Swiss Challenge sem hefst á fimmtudaginn á Sempachersee vellinum í Sviss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×