Golf

Spieth lék best á öðrum hring - Stenson enn í forystu

Jordan Spieth les pútt á öðrum hring.
Jordan Spieth les pútt á öðrum hring. Getty
Jordan Spieth lék best allra á öðrum hring á Coca Cola meistaramótinu sem fram fer á East Lake vellinum en hann kom inn á 66 höggum eða fjórum undir pari.

Spieth vann sig upp í annað sætið í mótinu en hann er samtals á sex höggum undir pari, þremur á eftir Henrik Stenson sem hefur leikið frábært golf hingað til og er á níu undir pari.

Paul Casey er í þriðja sæti en hann er á fimm höggum undir pari eftir hringina tvo.

Aðstæður voru erfiðar á öðrum hring í gær og aðeins örfáir kylfingar undir pari en bæði Jason Day og Rory McIlroy léku hringinn á 71 höggi eða einum yfir pari sem er afar óvanalegt hjá þessum tveimur bestu kylfingum heims.

Bein útsending frá þriðja hring á Coca-Cola meistaramótinu hefst á Golfstöðinni klukkan 17:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×