Sport

Tölfræðin úr sigrinum glæsilega á Svíum

Einar Hólmgeirsson skoraði 6 mörk úr 7 skotum gegn Svíum í Globen í dag.
Einar Hólmgeirsson skoraði 6 mörk úr 7 skotum gegn Svíum í Globen í dag.

Íslenska landsliðið vann stórglæsilegan fjögurra marka sigur á Svíum, 32-28, í Globen í dag en þetta var fyrri umspilsleikur þjóðanna um sæti á HM í Þýskalandi 2007. Íslenska landsliðið vann síðustu ellefu mínútur leiksins 8-2 þar sem Einar Hólmgeirsson skoraði fjögur af sex mörkum sínum í leiknum. Snorri Steinn Guðjónsson var markahæstur með 7 mörk þar af 5 úr vítum.

Ungu strákarnir Arnór Atlason og Einar Hólmgeirsson áttu báðir frábæran leik með íslenska liðinu. Arnór tók hvað eftir annað af skarið og var með 5 mörk og 6 stoðsendingar og Einar nelgdi boltanum sex sinnum af löngu færi framhjá sænska markverðinum Peter Genzel. Genzel sá aldrei við honum því eina skot Einars sem misheppnaðist fór í stöngina. Genzel varði annars 22 skot í leiknum þar af hélt hann hreinu fyrstu 8 mínúturnar eða allt þar til að Arnór Atlason skoraði fyrsta mark íslenska liðsins eftir 8 mínútur og 18 sekúndur.

Fyrirliðinn Ólafur Stefánsson skoraði bara eitt mark í leiknum úr 8 skotum en átti aftur á móti 12 stoðsendingar allar síðustu 33 mínútur leiksins eftir að Alfreð Gíslason færði hann í stöðu leikstjórnanda. Ólafur klikkaði á öllum fimm skotum sínum í stöðu hægri skyttu en tók tvö skot sem leikstjórnandi og skorðai úr öðru þeirra. Áttunda skot Ólafs var síðan víti sem hann setti yfir sænska markið.

Svíþjóð-Ísland 28-32 (13-13)

Gangur leiksins: 3-0 (8 mín), 3-1, 4-1, 5-2, 5-4 (14 min), 7-4, 7-7 (21 mín), 8-7, 8-8, 9-8, 9-9 (24 mín), 11-9, 12-10, 13-11 (29 mín), 13-13 - hálfleikur - 14-13, 14-14, 16-15, 17-16, 17-18 (37 mín), 18-18, 18-20 (39 mín), 20-20, 20-21, 22-21, 22-23 (45 mín), 24-23, 24-24, 26-24 (49 mín), 26-27, 27-27, 30-27 (57 mín), 30-28, 32-28.

Mörk Íslenska liðsins:

Snorri Steinn Guðjónsson 7/5 (10/5)

Einar Hólmgeirsson 6 (7)

Róbert Gunnarsson 5 (7)

Arnór Atlason 5 (10)

Alexander Peterson 3 (5)

Guðjón Valur Sigurðsson 3 (6)

Sigfús Sigurðsson 2 (2)

Ólafur Stefánsson 1 (8/1)

Varin skot íslenska liðsins:

Birkir Ívar Guðmundsson 13 (60 mín, af 41/2, 32%)

Stoðsendingar íslenska liðsins:

Ólafur Stefánsson 12 (2 inn á línu)

Arnór Atlason 6 (4)

Guðjón Valur Sigurðssson 2 (1)

Snorri Steinn Guðjónsson 2

Alexander Peterson 2

Róbert Gunnarsson 1

Fiskuð víti íslenska liðsins:

Alexander Peterson 2

Guðjón Valur Sigurðsson 2

Ólafur Stefánsson 1

Róbert Gunnarsson 1

Varin skot markvarða:

Svíþjóð 22 (41%)

Ísland 13 (32%)

Vítanýting:

Svíþjóð 2/2 (100%)

Ísland 6/5 (83%)

Mörk úr hraðaupphlaupum:

Svíþjóð 12 (4 í fyrstu bylgju)

Ísland 8 (5 í fyrstu bylgju)

Tapaðir boltar:

Svíþjóð 12

Ísland 10

Brottvísanir:

Svíþjóð 10 mínútur

Ísland 16 mínútur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×