Sport

Viktor Bjarki bestur

Viktor Bjarki Arnarsson
Viktor Bjarki Arnarsson Mynd/Hörður

Víkingsmaðurinn Viktor Bjarki Arnarsson var í dag útnefndur besti leikmaður fyrstu sex umferðanna í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, en það eru íþróttafréttamenn og fulltrúar Landsbankans sem standa að valinu. Þá var einnig valið úrvalslið umferðanna, besti þjálfarinn og besti dómarinn.

Úrvalsliðið skipa:

Markvörður er Daði Lárusson úr FH, Guðmundur Sævarsson og Ármann Smári Björnsson úr FH og Grétar Sigfinnur Sigurðsson úr Víkingi, Peter Gravesen úr Fylki, Sigurvin Ólafsson FH, Viktor Bjarki Arnarson úr Víkingi, Jónas Guðni Sævarsson Keflavík, Tryggvi Guðmundsson FH, Jóhann Þórhallsson Grindavík og Marel Baldvinsson Breiðabliki.

Besti þjálfarinn var kjörinn Ólafur Jóhannesson hjá FH og Kristinn Jakobsson var kjörinn besti dómarinn í fyrstu 6 umferðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×