Sport

Íslandsmet hjá Ragnheiði

Ragnheiður Ragnarsdóttir
Ragnheiður Ragnarsdóttir Mynd/E.Ól

Sundkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir úr KR bætti í morgun Íslandsmet sitt í 100 metra skriðsundi á EM sem fram fer í Helsinki þegar hún synti vegalengdina á 55,95 sekúndum. Hún var hársbreidd frá því að komast í undanúrslit í greininni og hafnaði í 25. sæti af 44 í undanrásunum.

Örn Arnarsson náði sér ekki á strik í 100 metra flugsundi og hafnaði í 21. sæti af 34 í undanrásum og Anja Ríkey Jakobsdóttir hafnaði í 27. sæti í undanrásum í 100 metra baksundi. Jóhanna gerða Gústafsdóttir kom 35. og síðust í mark í sömu grein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×