Sport

Örn fékk brons í flugsundi

Örn Arnarson fékk brons í 50 metra flugsundi á EM í Helsinki í dag
Örn Arnarson fékk brons í 50 metra flugsundi á EM í Helsinki í dag

Örn Arnarson úr SH vann í dag til bronsverðlauna á EM í sundi sem fram fer í Helsinki. Örn synti 50 metra flugsund á 23,55 sekúndum og var þetta í þriðja sinn í dag sem kappinn bætir eigið Íslandsmet í greininni.

Króatíski sundmaðurinn Alexei Puninski sigraði í sundinu og kom í mark á tímanum 23,21 sekúndu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×