Sport

Þrír titlar hjá Íslendingum á NM í skylmingum í dag

Mynd/E.Ól

Íslensku keppendurnir á Norðurlandamótinu í skylmingum gerðu gott mót í dag. Þrír af íslensku keppendunum unnu þannig sigra í skylmingum með höggsverði á öðrum keppnisdeginum.

Ingibjörg Laufey Guðlaugsdóttir (SFR) varð Norðurlandameistari í kvennaflokki 17 ára og yngri (Cadet women), Sævar Lúðvíksson (SFR) varð Norðurlandameistar í ungmennaflokki (Junior open) og Ólafur Bjarnason FH varð Norðurlandameistari í öldungaflokki. Keppnin heldur áfram á morgun þegar einstaklingskeppninni lýkur og á fimmtudaginn verður keppt í liðakeppni þar sem íslensku liðin verða fimm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×