Körfubolti

Frábær leikur Helenu dugði skammt

Helena Sverrisdóttir
Helena Sverrisdóttir

Helena Sverrisdóttir var aðeins einu stigi frá því að jafna met Önnu Maríu Sveinsdóttur í kvöld þegar hún skoraði 34 stig í 92-72 tapi kvennalandsliðsins í körfubolta gegn Svartfellingum ytra í Evrópukeppninni.

Helena fór hamförum í byrjun leiksins og skoraði 15 stig á rúmum 14 mínútum, en íslenska liðið hafði forystu snemma leiks. Svartfellingar höfðu yfir í hálfleik 53-29 og náðu mest 35 stiga forystu áður en íslenska liðið lagaði stöðuna í lokin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×