Körfubolti

KR mætir Keflavík í úrslitunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hildur Sigurðardóttir skoraði fimmtán stig fyrir KR í kvöld.
Hildur Sigurðardóttir skoraði fimmtán stig fyrir KR í kvöld. Mynd/Vilhelm

KR komst í úrslit Powerade-bikarkeppni kvenna í kvöld eftir sigur á Grindavík í undanúrslitum, 69-60. KR mætir Keflavík í úrslitunum um helgina.

Grindavík hafði eins stigs forystu í hálfleik, 33-32, en KR-ingar náði góðum tökum á leiknum í þriðja leikhluta sem þeir unnu með fimmtán stiga mun. Grindavík náði að minnka muninn aftur í fjórða leikhluta en það reyndist ekki nóg.

Sigrún Sjöfn Ámundardóttir skoraði nítján stig fyrir KR í kvöld og Hildur Sigurðardóttir fimmtán.

Tiffany Roberson skoraði nítján fyrir Grindavík og Petrúnella Skúladóttir fimmtán.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×