Formúla 1

Vettel á ráspól

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sebastian Vettel fagnar sigrinum í tímatökunni.
Sebastian Vettel fagnar sigrinum í tímatökunni. Nordic Photos / AFP
Þjóðverjinn Sebastien Vettel verður fremstur á ráspól í enska kappakstrinum á Silverstone-brautinni á morgun eftir að hafa borið sigur úr býtum í tímatökunum í dag.

Þetta er í þriðja skiptið á tímabilinu sem Vettel er fremstur á ráspól. Bretinn Jenson Button sem hefur myndarlega forystu í stigakeppni ökuþóra náði sjötta besta tímanum. Það er hans versti árangur í tímatökum á árinu.

Vettel ekur á Red Bull-bifreið en liðsfélagi Button hjá Brawn, Rubens Barrichello, verður við hlið Vettell á ráspólnum á morgun.

Mark Webber var þriðji og Jarno Trulli fjórði í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×