Körfubolti

Mótanefnd KKÍ leyfir ekki að færa leik Snæfells og Hamars

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það mun reyna mikið á Hamarsmenn um helgina því þeir spila útileiki á föstudegi og sunnudegi.
Það mun reyna mikið á Hamarsmenn um helgina því þeir spila útileiki á föstudegi og sunnudegi. Mynd/Valli

Leikur Snæfells og Hamars í Subwaybikar karla fer fram í Stykkishólmi klukkan 19.15 á sunnudagskvöldið kemur þrátt fyrir að bæði félög hafi óskað eftir því að leikurinn yrði færður yfir á mánudaginn. Mótanefnd KKÍ leyfir ekki að færa leikinn um einn sólarhring.

Hamarsliðið á leik á föstudaginn á móti Stjörnunni en Snæfell spilar við Njarðvík á heimavelli í kvöld. Hamarsmenn fá því aðeins eins dags hvíld á milli tveggja útileikja sem forráðamenn liðsins eru ekki ánægðir með.

Þjálfari Hamarsliðsins, Ágúst Björgvinsson, er síðan einnig að þjálfa kvennalið félagsins sem mætir KR í DHL-höllinni í Subwaybikar kvenna á sama tíma og karlaleikurinn fer fram.

Snæfellingar voru tilbúnir að koma til móts við Hamar í vandræðum þeirra þar sem þjálfarinn Ágúst Björgvinsson gat ekki verið á tveimur stöðum í einu.

Mótanefnd KKÍ hafnaði hinsvegar beiðni félaganna og því þarf Ágúst eftir sem áður að velja á milli hvort hann stjórni karlaliðinu á móti Snæfelli eða kvennaliðinu á móti KR.

Úrskurður mótanefndar í málinu:

Mótanefnd telur ekki tilefni á færslu leiks Snæfells og Hamars.

Ávallt þegar raðað er niður bikarleikjum á miðju tímabili hefur heimalið töluvert mikið um það að segja hvenær spilað er enda ráða þau yfir íþróttahúsunum.

Ein af meginforsendum við niðurröðun er að reyna koma því við að ef félag er með tvo meistaraflokka í keppninni að þeir leika ekki á sama tíma.

Þegar leikjum Hamars var raðað niður vildu heimaliðin bæði leika á sama tíma s.s. sunnudaginn 6. des kl. 19.15. Við þær aðstæður var augljóst að meistaraflokkar Hamars myndu leika á sama tíma.

Það kemur mörgum sinnum fyrir yfir veturinn að félög óski sameiginlega um að fresta leikjum en þar sem að mótahald körfuknattleikssambandsins er viðamikið og stórt er því mikilvægt að það sé festa í mótahaldinu og gangi sem best. Á þeim forsendum hafnaði mótanefnd beiðninni um frestun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×