Körfubolti

Keflavík örugglega inn í bikarúrslitin eftir stórsigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristi Smith skoraði 20 stig í kvöld.
Kristi Smith skoraði 20 stig í kvöld. Mynd/Stefán

Keflavíkurkonur eru komnar í úrslitaleik Subwaybikars kvenna eftir 49 stiga sigur, 97-48, á 1. deildarliði Fjölnis í undanúrslitaleik liðanna í Grafarvogi. Keflavík mætir annaðhvort Haukum eða Njarðvík sem mætast í hinum leiknum á sunnudaginn.

Þetta í 18. sinn á 23 árum sem Keflavíkurkonur komast í Höllina en ekkert annað kvennalið hefur komist oftar í bikarúrslitaleikinn.

Keflavík komst í 25-7 eftir fyrsta leikhluta og var 59-13 yfir í hálfleik. Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkurliðsins, leyfði síðan yngri og óreyndari leikmönnum liðsins að spila í seinni hálfleiknum enda bikarúrslitaleikssætið í höfn.

Kristi Smith skoraði 20 stig á 21 mínútu fyrir Keflavík en alls skoruðu fimm leikmenn liðsins yfir tíu stig. Birna Valgarðsdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir voru báðar með 14 stig og þær Eva Rós Guðmundsdóttir og Hrönn Þorgrímsdóttir skoruðu 10 stig.

Bergdís Ragnarsdóttir skoraði 15 stig fyrir Fjölni og Eva María Emilsdóttir var með 14 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×