Formúla 1

Vettel fremstur á ráslínu í ellefta skipti í ár

Mark Webber, Sebastian Vettel og Jenson Button fagna árangrinum í tímatökunni í dag.
Mark Webber, Sebastian Vettel og Jenson Button fagna árangrinum í tímatökunni í dag. AP MYND: TORU TAKAHASHI
Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í tímatökunni á Formúlu 1 brautinni í Singapúr í dag. Hann ók á tímanum 1:44.381 og Mark Webber á Red Bull náði næst besta tíma og var 0.351 úr sekúndu á eftir Vettel. Jenson Button á McLaren náði þriðja besta tíma og var 0.428 sekúndum á eftir Vettel. Vettel verður fremstur á rásllínu í ellefta skipti á árinu í kappakstrinum á morgun.

Lewis Hamilton á McLaren verður fjórði á ráslínunni í kappakstrinum á morgun. Ekki náðist að setja bensín nógu hratt á bíl hans í tæka tíð á lokasprettinum í tímatökunni. Hamilton sat því í bílskúrnum síðustu mínúturnar og féll þannig úr öðru sæti í það fjórða, þar sem Webber og Button náði betri tíma í lokin.

Fernando Alonso sem er í öðru sæti í stigamótinu á eftir Vettel náði fimmta besta tíma í tímatökunni og liðsfélagi hans hjá Ferrari, Felipe Massa var sjötti fljótastur.

Þrír ökumenn sem komust í lokaumferðina óku ekkert í lokaumferðinni, trúlega til að spara dekkin fyrir sjálfan kappaksturinn á morgun, sem verður í beinni í útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11.30. Útsendingin verður í opinni dagskrá.

Tímarnir í dag af autosport.com

1. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m44.381s

2. Mark Webber Red Bull-Renault 1m44.732s + 0.351

3. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m44.804s + 0.423

4. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m44.809s + 0.428

5. Fernando Alonso Ferrari 1m44.874s + 0.493

6. Felipe Massa Ferrari 1m45.800s + 1.419

7. Nico Rosberg Mercedes 1m46.013s + 1.632

8. Michael Schumacher Mercedes engin tími

9. Adrian Sutil Force India-Mercedes engin tími

10. Paul di Resta Force India-Mercedes engin tími

11. Sergio Perez Sauber-Ferrari 1m47.616s + 2.685

12. Rubens Barrichello Williams-Cosworth 1m48.082s + 3.151

13. Pastor Maldonado Williams-Cosworth 1m48.270s + 3.339

14. Sebastien Buemi Toro Rosso-Ferrari 1m48.634s + 3.703

15. Bruno Senna Renault 1m48.662s + 3.731

16. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1m49.862s + 4.931

17. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari engin tími

18. Vitaly Petrov Renault 1m49.835s + 3.438

19. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m50.948s + 4.551

20. Jarno Trulli Lotus-Renault 1m51.012s + 4.615

21. Timo Glock Virgin-Cosworth 1m52.154s + 5.757

22. Jerome D'Ambrosio Virgin-Cosworth 1m52.363s + 5.966

23. Daniel Ricciardo HRT-Cosworth 1m52.404s + 6.007

24. Tonio Liuzzi HRT-Cosworth 1m52.810s + 6.413




Fleiri fréttir

Sjá meira


×