Formúla 1

Hamilton telur titilinn nánast úr seilingarfjalægð

Lewis Hamilton á mótssvæðinu á Ítalíu á dögunum.
Lewis Hamilton á mótssvæðinu á Ítalíu á dögunum. AP MYND: Antonio Calanni
Lewis Hamilton keppir með Formúlu 1 liði McLaren í Singapúr um næstu helgi, en hann er í fimmta sæti í stigamóti ökumanna. Hamilton er 126 stigum á eftir Sebastian Vettel hjá Red Bull, en Vettel á möguleika á því að tryggja sér meistaratitilinn um helgina ef úrslitin í mótinu verða honum hagstæð. Sex mótum er enn ólokið í Formúlu 1 á árinu.

„Ég elska götubrautir og hef gaman af þessu svæði. Þetta er næstum eins og tvær brautir í einni. Það eru nokkrar hraðar beygjur, sem þarfnast góðrar uppsetningar bílsins og áræðni", sagði Hamilton í fréttatilkynningu frá McLaren um mótið í Singapúr.

„En það eru líka þröngar 90 gráðu beygjur, sem eru hægari og tæknilegri. Maður verður að vera nákvæmur og þolinmóður, bíða eftir að dekkin grípi áður en stigið er á bensíngjöfina. Ef maður er óþolinmóður, þá tapar maður tíma af því maður yfirkeyrir dekkin og bílinn."

„Ég ætla að verða framtaksamur í því að ná góðum árangri um næstu helgi. Við vorum með bíl sem gat verið í fyrsta sæti í Belgíu og Ítalíu. Ég vil því ganga úr skugga um að við mætum til Singapúr með vel uppsettan bíl fyrir æfingar og tímatökuna. Ef allt gengur upp verðum við í toppformi á sunnudag."

„Þó titilinn sé nánast úr seilingarfjarlægð, þá mun ég vera ágengur í því að ná bestu mögulegu útkomunni. Ég gefst aldrei upp og keppi til sigurs að venju", sagði Hamilton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×