Sport

Sverre: Frábær barátta og grimmd

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Sverre Jakobsson.
Sverre Jakobsson. Mynd/Stefán

„Vörnin hefur ekki verið góð hjá okkur að undanförnu og við ætluðum okkur að laga það. Mér fannst við svara því vel í þessum leik og það var margt jákvætt hjá okkur," sagði Sverre Jakobsson sem lék vörnina af gríðarlegu afli gegn Þjóðverjum í 27-23 sigri Íslands í Laugardalshöll í kvöld.

„Þessi leikur var í okkar huga bara fyrsti leikurinn á EM, við höfum ekki langan tíma til að undirbúa okkur, og hlutirnir þurfa því að fara hratt af stað. Ákefðin var frábær, barátta og grimmd. Og Björgvin var flottur í markinu. Svona á þetta að vera," sagði Sverre.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×