Körfubolti

Umfjöllun og viðtöl: KR - Grindavík 81-76

Stefán Árni Pálsson í DHL-höllinni skrifar
KR komst í 8-liða úrslit Powerade-bikarsins í körfubolta þegar þeir unnu flottan sigur, 81-76, á Grindvíkingum  í DHL-höllinni í kvöld. Leikurinn var æsispennandi nánast allan tímann og réðust úrslitin ekki fyrir en á loka sekúndum leiksins. KR-ingar voru hreinlega sterkari í fjórða og síðasta leikhlutanum og komust verðskuldað áfram.

KR teflir fram þremur nýjum leikmönnum á nýja árinu og litu þeir allir nokkuð vel út í gær. Joshua Brown var atkvæðamestur í liði KR með 27 stig en J'Nathan Bullock skoraði 18 stig fyrir Grindavík.

Grindvíkingar voru sterkari aðilinn í upphafi fyrsta leikhluta en þeir komust fljótlega í 8-2. Grindvíkingar héldu áfram uppteknum hætti næstu mínútur og misnotuðu varla skot. Þegar lítið var eftir af fjórðungnum var munurinn tíu stig á liðunum 21-11 fyrir gestina. Heimamenn komu sterkir til baka undir lok leikhlutans og minnkuðu muninn niður í tvö stig 23-21.

Heimamenn voru aðeins nokkrar mínútur að komast yfir í leiknum í strax í upphafi annars leikhluta var staðan orðin 27-25 fyrir KR. Jafnræði var á með liðunum út fyrri hálfleikinn og var staðan 45-41 þegar menn gengu til búningsherbergja.

Jafnt var nánast á öllum tölum í þriðja leikhlutanum og mikil spenna í leiknum. J'Nathan Bullock, leikmaður Grindvíkinga, var að spila vel og setti hvern þristinn niður á fætur öðrum. KR-ingar voru samt ávallt einu skrefi á undan gestunum og var staðan 65-63 fyrir lokafjórðunginn.

Leikurinn hélt áfram að vera spennandi í byrjun fjórða leikhlutans og þegar hann var hálfnaður munaði aðeins tveim stigum á liðunum. Grindvíkingar höfðu náð forystunni og staðan var 71-69 fyrir gestina. Þegar ein mínúta var eftir af leiknum náði spennan hámarki.

KR-ingar höfðu eins stigs forystu 75-74 og þakið ætlaði að rifna af húsinu.  Þegar 30 sekúndur voru eftir voru KR-ingar með þriggja stiga forystu 77-74. Heimamenn voru sterkari í lokin og náðu að innbyrða frábæran sigur 81-76.

Hrafn: Við eigum langt í land en frábær úrslit

„Ég er bara ofboðslega glaður með þessi úrslit en síðasta vika er búinn að reyna mikið á liðið,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir sigurinn í kvöld.

„Við tókum fjórar æfingar á þremur dögum um helgina og þurftum að vinna í ákveðnum hlutum. Liðið er í raun langt frá því að vera komið á þann stað sem það getur verið á“.

„Það er því frábært að komast áfram í þessari keppni svo liðið fái sjálfstraust og geti haldið áfram að bæta sig“.

„Mér líst vel á næstu vikur. Liðið er að bæta við sig einu stöðugildi og styrkist mikið við það. Ég var heilt yfir mjög ánægður með nýju leikmennina í liðinu og þeir eiga aðeins eftir að verða betri“.

Hægt er að sjá myndband af viðtalinu við Hrafn hér að ofan.

Helgi: Við ætluðum okkur alla leið í þessari keppni

„Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur þar sem liðið ætlaði sér alla leið í þessari keppni,“ sagði Helgi Jónas Guðfinnsson, þjálfari Grindvíkinga, eftir tapið í kvöld.

„Við vorum bara ekki nægilega klókir í sókninni undir lok leiksins og sættum okkur bara við léleg skot og í raun tókum við allt of mörg þriggja stiga skot í þessum leik“.

„KR-ingar komu mér þannig lagað ekkert á óvart en maður fann einhverja stemmningu með liðinu í kvöld.“

„Við þurfum bara að nota þennan leik til að komast aftur á beinu brautina og einbeita okkur að deildinni, það eru enn tveir titlar í boði og við ætlum okkur að hirða þá báða“.

Hægt er að sjá viðtalið við Helga með því að ýta hér.



KR-Grindavík 81-76 (21-23, 24-18, 20-22, 16-13)


KR: Joshua Brown 27/8 fráköst/7 stoðsendingar, Robert Lavon Ferguson 15/13 fráköst/3 varin skot, Hreggviður Magnússon 13, Dejan Sencanski 10/6 fráköst, Finnur Atli Magnusson 6, Martin Hermannsson 4, Jón Orri Kristjánsson 4/5 fráköst, Emil Þór Jóhannsson 2.

Grindavík: J'Nathan Bullock 18/11 fráköst/5 stoðsendingar, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 14/7 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 12, Giordan Watson 11/5 fráköst/7 stoðsendingar, Ólafur Ólafsson 9, Ómar Örn Sævarsson 5/6 fráköst, Þorleifur Ólafsson 5, Björn Steinar Brynjólfsson 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×