Formúla 1

Karthikeyan biður Button og Vettel afsökunar

Birgir Þór Harðarson skrifar
Karthikeyan er ekki ánægður með framgöngu forystusauða í Formúlu 1 en baðst þó afsökunar á óhöppunum í morgun.
Karthikeyan er ekki ánægður með framgöngu forystusauða í Formúlu 1 en baðst þó afsökunar á óhöppunum í morgun. nordicphotos/afp
Indverski ökuþórinn Narain Karthikeyan hjá HRT liðinu hefur beðið þá Jenson Button og Sebastian Vettel afsökunar á óhöppunum sem hann átti þátt í í Malasíska kappakstrinum.

Karthikeyan komst upp í 10 sæti áður en keppninni var frestað fyrir aftan öryggisbílinn vegna gríðarlegrar rigningar. Þegar mótið var endurræst tóku þeir hver eftir annan fram úr Indverjanum sem endaði mótið næst síðastur í 21. sæti.

Þegar Button ætlaði framúr Karhikeyan fór hann aðeins utan í HRT bílinn og braut framvænginn á McLaren bílnum. Button átti erfitt uppdráttar það sem erftir var í kappakstrinum og endaði í 14. sæti.

Undir lok mótsins reyndi Sebastian Vettel að hringa Indverjann en endaði á því að fara utan í framvænginn á HRT bílnum og sprengja afturdekk hjá sér. Karhikeyan var dæmdur brotlegur fyrir það slys.

Jenson Button hefur sjálfur lýst ábyrgð á óhappi sínu og Karhikeyan sem er þó ekki nógu ánægður með framgöngu forystumannanna þegar þeir hringa hægari bíla.

"Þegar forystumennirnir reyna að hringa þig," sagði Karthikeyan eftir mótið, "reyna þeir að ýta þér út af aksturslínunni og eyðileggja fyrir þér."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×