Formúla 1

Hamilton lang fjótastur á föstudagsæfingum

Birgir Þór Harðarson skrifar
Hamilton var lang fljótastur í Malasíu í nótt á McLaren bíl sínum.
Hamilton var lang fljótastur í Malasíu í nótt á McLaren bíl sínum. nordicphotos/afp
Lewis Hamilton var fljótastur allra á báðum föstudagsæfingunum fyrir kappaksturinn í Malasíu sem fram fer um helgina. Red Bull menn voru ekki langt undan á fyrri æfingunni en mistu af lestinni í þeirri seinni.

Mercedes bíll þeirra Nico Rosberg og Michael Schumacher virðist vera gríðarlega fljótur á Sepang brautinni og voru þeir báðir í efstu fjórum sætunum á æfingunum tveimur.

Jenson Button, sem sigraði ástralska kappaksturinn um siðastliðna helgi, var ekki langt undan liðsfélaga sínum Hamilton á seinni æfingunni. Vandamál komu í veg fyrir að hann æki fleiri en 15 hringi á fyrri æfingunni.

Búist var við að rigning myndi setja strik í reikninginn á fyrri æfingunni og hafa þar af leiðandi áhrif á þá síðari. Liðin kepptust því við að fullkomna bíla sína fyrir kappaksturinn snemma morguns í Malasíu. Af rigningunni varð þó ekki.

Lotus liðið tilkynnti á Twitter eftir seinni æfinguna að það þyrfti að skipta um gírkassa í bíl Kimi Raikkönen. Hann mun því missa fimm sæti á ráslínunni á sunnudaginn.

Kamui Kobayashi á Sauber var fjórtándi á báðum æfingunum. Hann hefur væntanlega ekki sofið neitt rosalega vel því á twitter greindi hann frá skrítnum draum sem hann átti þá um nóttina. Kamui er eini ökumaðurinn sem fær að tvíta í friði frá vinnuveitendum sínum. Aðrir ökumenn fylgja einhverjum leiðinlegum PR reglum liðanna.

Færslan hans Kamui var svohljóðandi: "@kamui_kobayashi Góðan dag. Átti furðulegan draum þar sem ég var í stríði með hagglabyssu sem ég skaut úr óvart. Það var óhuggulegt en mjög spennandi draumur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×