Formúla 1

Vettel fljótastur í Valencia

Birgir Þór Harðarson skrifar
Vettel hefur unnið kappaksturinn í Valencia  2010 og 2011. Hann er því á góðri leið með að sækja sinn þriðja sigur í röð í höfninni í Valencia.
Vettel hefur unnið kappaksturinn í Valencia 2010 og 2011. Hann er því á góðri leið með að sækja sinn þriðja sigur í röð í höfninni í Valencia. nordicphotos/afp
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel var fljótastur á seinni æfingum dagsins fyrir kappaksturinn í Valencia á Spáni á sunnudag. Red Bull-liðið notaðist við uppfærðan afturenda bílsins.

Eins og svo oft áður í sumar skilur sekúnta efstu fimmtán að. Það er því mjög erfitt að segja til um það hver muni hrifsa ráspól í tímatökunum á morgun.

Pastor Maldonado var fljótastur á Williams-bíl sínum á fyrri æfingum dagins. Hann náði þó ekki að halda því og endaði þrettándi. Vettel varð annar í þeirri æfingu og aðeins 0,08 sekúntum á eftir Maldonado.

Red Bull-bílarnir líta út fyrir að vera fyrna sterkir í Valencia því Mark Webber, liðsfélagi Vettels, var aldrei langt undan.

Á seinni æfingunni varð Nico Hulkenberg á Force India annar og Kamui Kobayashi þriðji. Þá kom Michael Schumacher og Bruno Senna.

McLaren-menn virðast vera í einhverskonar vandræðum í Valencia því þeir komust ekki á topp 10 í seinni æfingunni og voru aðeins í fjórða og áttunda sæti á þeirri fyrri.

Á sama hátt virðist Felipe Massa ekki ná að fylgja eftir markmiðum sínum um að skáka liðsfélaga sínum Fernando Alonso. Massa var aðeins fjórtándi í fyrri æfingunni og fimmtándi í þeirri seinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×