Golf

Jonas Blixt fagnaði sínum fyrsta sigri á PGA mótaröðinni

Jonas Blixt fékk 110 milljónir kr. fyrir sigurinn á frys.com meistaramótinu.
Jonas Blixt fékk 110 milljónir kr. fyrir sigurinn á frys.com meistaramótinu. AP
Sænski kylfingurinn Jonas Blixt landaði sínum fyrsta sigri á bandarísku PGA mótaröðinni í golfi í gærkvöld. Hinn 28 ára gamli Blixt stóð uppi sem sigurvegari á Frys.com meistaramótinu þar sem hann lék samtals á 16 höggum undir pari en hann er þriðji nýliðinn á mótaröðinni sem vinnur PGA mót á þessu tímabili. Með sigrinum tryggði Blixt sér keppnisrétt á PGA mótaröðinni út keppnistímabilið 2014 og hann fékk að auki 110 milljónir kr. í verðlaunafé fyrir sigurinn.

Tim Petrovic gerði atlögu efsta sætinu á lokahringnum en Bandaríkjamaðurinn lék á 64 höggum og endaði á 15 höggum undir par i líkt og landi hans Jason Kokrak.

Blixt var að leika á sínu 19. PGA móti á ferlinum en hann endaði í þriðja sæti í síðustu viku á móti sem fram fór í Las Vegas og var það besti árangur hans þart til í gær. Blixt hefur „önglað" saman um 230 milljónum kr. í verðlaunafé á þessu tímabili og er hann í 35. sæti á peningalistanum á PGA mótaröðinni.

Það eru aðeins tvö mót eftir á tímabilinu á PGA mótaröðinni og á þeim mótum ræðst hvaða 125 kylfingar ná að halda keppnisrétti sínum á mótaröðinni á næsta ári. ´

Staðan á peningalistanum:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×