Formúla 1

Lotus heldur Grosjean árið 2013

Birgir Þór Harðarson skrifar
Grosjean ekur áfram fyrir Lotus-liðið á komandi tímabili. Kærastan hans, Marion Jolles, er ánægð með framvindu mála.
Grosjean ekur áfram fyrir Lotus-liðið á komandi tímabili. Kærastan hans, Marion Jolles, er ánægð með framvindu mála. nordicphotos/afp
Lotus-liðið hefur tekið ákvörðun um að nýta starfskrafta Romain Grosjean á nýjan leik árið 2013. Grosjean var harðlega gagnrýndur í sumar fyrir einstaklega óheppilega árekstra og annan óskunda í keppnum ársins.

Grosjean tókst hins vegar að vinna Meistarakappaksturinn (Race of Champions, RoC) á dögunum. Til þess þurfti hann að leggja tíföldu heimsmeistarana Micheal Schumacher og Sebastian Vettel af velli, en þeir kepptu fyrir hönd Þýskalands.

Grosjean var bannað að keppa í ítalska kappakstrinum í ár fyrir síendurtekin brot á brautinni og hættulegan akstur. Bannið fékk hann fyrir að aka aftan á Lewis Hamilton með þeim afleiðingum að báðir þurftu að hætta keppni, auk Fernando Alonso sem var heppinn að þurfa ekki að fara á spítala í kjölfarið. Auðvelt er að fullyrða að heimsmeistaratitill Fernando Alonso tapaðist í þessu slysi.

Grosjean mun aka við hlið Kimi Raikkönen hjá Lotus á næsta ári eins og hann gerði í sumar.



Max Chilton fær sénsinn hjá MarussiaNýliðinn Max Chilton hefur verið ráðinn til að aka fyrir Marussia-liðið á næsta ári við hlið Timo Glock. Chilton tekur við af Charles Pic sem hefur ráðið sig til Caterham.

Chilton er tuttugu og eins árs gamall Breti sem var á mála hjá Marussia í sumar. Hann ók einnig fyrir systurlið Marussia í GP2-mótaröðinni í sumar.

Max Chilton fær sénsinn hjá Marussia



Fleiri fréttir

Sjá meira


×