Formúla 1

De la Rosa vill vera formaður GPDA áfram

Birgir Þór Harðarson skrifar
Pedro de la Rosa, tilraunaökuþór Ferrari-liðsins, vill vera formaður samtaka Grand Prix-ökumanna (GPDA) áfram árið 2013.

Þessi 41 árs Spánverji hefur sinnt formannsverkum fyrir samtökin síðan í fyrra þegar hann ók fyrir HRT-liðið. Tók hann þá við af Rubens Barrichello sem þurfti að segja af sér eftir að hafa misst keppnissæti sitt hjá Williams-liðinu.

De la Rosa gat hins vegar ekki sinnt skyldum sínum fyrir samtökin nógu vel því HRT-liðið virtist taka nokkuð mikið af hans tíma. Árið í ár verður að öllum líkindum rólegra fyrir hann svo hann telur sig reiðubúinn að takast á við verkefnin framundan. „Ef ökumennirnir vilja hafa mig áfram þá verð ég glaður að sinna verkefnunum."

Áætlað er að halda kosningar í efstu stöður samtakanna þegar fyrsta mót ársins fer fram í Ástralíu þann 17. mars. Meðstjórnendur í samtökunum eru þeir Felipe Massa og Sebastian Vettel. Óvíst er hvort þeir muni gefa kost á sér á ný en þeir hafa sinnt þeim störfum síðan 2011.

Hlutverk GPDASamtök Grand Prix-ökumanna eru einskonar stéttarfélag ökumanna í Formúlu 1. Þeirra helsta baráttumál í gegnum tíðina hefur verið að auka öryggi ökumanna, liðsmanna og áhorfenda í formúlunni og unnið stórvirki í þeim efnum.

Félagið stofnað árið 1961 með það að markmiði að auka og viðhalda öryggiskröfunum í íþróttinni. Bæði mótshaldarar og liðin áttu það til að fella öryggiskröfurnar til þess að spara peninga, með hörmulegum afleiðingum. Félagið var leyst upp árið 1982 í kjölfar deilna og nýrra samninga milli FIA og FOCA (Formula One Constructors Association).

Helgin í maí 1994 reyndist afdrifarík. Þar fórust Roland Ratzenberger og Ayrton Senna í fyrstu banaslysunum í Formúlu 1 í 18 ár. Strax í næsta móti, í Mónakó sama ár, voru samtökin endurvakin og Michael Schumacher skipaður formaður.

Samtökin hafa formlegt vægi í Bretlandi sem hlutafélag en skrifstofur samtakanna eru í Mónakó.

Hér að ofan má finna myndband af upphafi kappaksturins í Imola árið 1994 og sjá banaslys Ayrton Senna sem varð til þess að GPDA var stofnað á nýjan leik. Viðkvæmir eru varaðir við myndunum.

Flak Williams-bílsins sem Senna ók í kappakstrinum örlagaríka í maí 1994.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×