Formúla 1

Kubica fékk ekki keppnissæti í DTM

Birgir Þór Harðarson skrifar
Kubica reynsluók Mercedes-bíl á dögunum en fékk ekki lausa keppnissætið.
Kubica reynsluók Mercedes-bíl á dögunum en fékk ekki lausa keppnissætið. nordicphotos/afp
Pólski ökuþórinn Robert Kubica var hafnað af Mercedes-bílaframleiðandanum á dögnunum þegar hann fékk ekki úthlutað keppnissæti í DTM-mótaröðinni í ár. Ungstirnið Daniel Juncadella var valinn í hans stað.

Kubica meiddist illa fyrir tveimur árum þegar vegrið gekk í gegnum rallýbíl sem hann ók á Ítalíu með þeim afleiðingum að hægri hönd hans var nánast af, hékk aðeins á taugum og sinum. Kubica hefur náð sér að fullu eftir margar skurðaðgerðir og leitaði að keppnissæti fyrir keppnistímabilið.

Nýr mótorsportstjóri Mercedes, Toto Wolff, sagðist vera viss um að ung ökumannauppstilling Mercedes í DTM árið 2013 myndi skila sér. „Undirbúningur ungra hæfileikamanna er stór partur af sögu Mercedes-Benz svo það er rökrétt að auka hlut þeirra í keppnisliðum okkar í DTM."

Robert Kubica vann eitt mót í Formúlu 1 fyrir BMW Sauber árið 2008.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×