Fótbolti

Schalke hélt jöfnu í Tyrklandi

Drogba náði ekki að skora í kvöld.
Drogba náði ekki að skora í kvöld. Mynd/AFP
Þýska liðið Schalke er í fínum málum eftir að hafa nælt í sterkt jafntefli, 1-1, í Tyrklandi gegn Galatasaray.

Heimamenn fengu sannkallaða óskabyrjun er Burak Yilmaz kom þeim yfir. Hann fékk sendingu inn fyrir, tók boltann á hælinn, yfir varnarmann og kláraði svo markið með stæl. Glæsilega gert.

Þjóðverjarnir jöfnuðu metin rétt fyrir hlé. Glæsileg skyndisókn sem endaði með því að Jones skoraði.

Heimamenn beittari í síðari hálfleiknum en gestirnir vörðust vel og lokatölur því 1-1.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×