Formúla 1

Webber ætlar að vera betri í ár

Birgir Þór Harðarson skrifar
Webber ætlar sér stóra hluti árið 2013.
Webber ætlar sér stóra hluti árið 2013.
Ástralinn Mark Webber verður á heimavelli í Melbourne um helgina þegar keppnistímabilið í Formúlu 1 hefst þar. Hann áttar sig hins vegar á því að hann þurfi að skila stöðugari niðurstöðum.

Webber ætlar sér að vinna heimsmeistaratitilinn í ár en liðsfélagi hans Sebastian Vettel hefur unnið titilinn síðustu þrjú ár. Webber átti möguleika á að vinna heimsmeistaratitilinn í síðasta mótinu árið 2010 en þurfti að láta í minni pokann.

"Ég var mjög áreiðanlegur árið 2011 líka en hraðinn var kannski alveg til staðar þá - eða sigrarnir," sagði hann við blaðamenn í Ástralíu í nótt. "Í fyrsta sinn sem ég var óheppinn með bilanir og annað var á seinni hluta ársins 2012."

"Ég verð því að halda áfram gera það sem ég hef verið að gera," sagði Webber. "Og hef ég það sem til þarf? Algerlega. Ég get alveg gert þetta aftur engin spurning."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×