Formúla 1

Dekkin ekki endurskoðuð fyrr en eftir Barein

Birgir Þór Harðarson skrifar
Starfsmenn Pirelli og Ferrari rannsaka og hagræða notuð dekk í Malasíu.
Starfsmenn Pirelli og Ferrari rannsaka og hagræða notuð dekk í Malasíu.
Ítalski dekkjaframleiðandinn Pirelli, sem sér öllum keppnisliðunum í Formúlu 1 fyrir dekkjum, ætlar ekki að endurskoða nálgun sína þetta árið fyrr en að kappakstrinum í Barein loknum. Flest liðin eru mjög ósátt með dekkin sem þau hafa fengið þetta árið.

Fremstir í flokki óánægðra liða eru Red Bull sem segja dekkin einfaldlega of viðkvæm fyrir Formúlu 1. Ökumenn séu of takmarkaðir af endingargetu dekkjanna og þurfa að eyða of mikilli orku í að halda líftíma þeirra í hámarki.

Spurður út í þessa gagnrýni segir Paul Hembery, mótorsportstjóri hjá Pirelli, vandamál liðanna sjálfra skekkja myndina af dekkjunum. Pirelli sé samt sem áður að íhuga að breyta gúmmíinu ef mótin færu að verða leiðinleg vegna dekkjanna.

„Ég helda ð við verðum að vera ánægðir með þessi dekk," sagði Hembery. „Tvö stórlið eiga greinilega í vandræðu með dekkin milli ökuþóra sinna og kannski gerði það að verkum að keppnin varð ekki spennandi í Malasíu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×