Körfubolti

Pálína valin besti leikmaðurinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Pálína með verðlaun sín í leikslok í kvöld.
Pálína með verðlaun sín í leikslok í kvöld. Mynd/Daníel
Pálína Gunnlaugsdóttir hjá Keflavík var í kvöld valinn besti leikmaður úrslitakeppni kvenna í körfuknattleik.

Pálín skoraði 30 stig í 82-70 sigri Keflavíkur á KR í fjórða leik liðanna í kvöld en sigurinn tryggði liðinu Íslandsmeistaratitilinn. Pálína var í sérflokki hjá gestaliðinu og hefur átt frábæra leiki í úrslitakeppninni.

Þetta var fimmti Íslandsmeistaratitill Pálínu á átta árum en þetta er í fyrsta skipti sem hún er fyrirliði liðsins. Hún leiddi liðið einnig til bikarmeistaratitils og deildarmeistaratitils fyrr á leiktíðinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×