Fótbolti

Mist opnaði markareikninginn hjá Avaldsnes

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ísland á fjóra fulltrúa hjá Avaldsnes.
Ísland á fjóra fulltrúa hjá Avaldsnes. Mynd/Heimasíða Avaldsnes
Mist Edvardsdóttir skoraði eitt marka Avaldsnes sem gerði 4-4 jafntefli gegn Erninum frá Þrándheimi í norsku úrvalsdeidlinni í knattspyrnu í dag.

Mist kom heimakonum á bragðið á 13. mínútu og í hönd fór markaveisla. Heimakonur leiddu 4-2 í síðari hálfleik en misstu leikinn niður í jafntefli.

Avaldsnes hefur 4 stig eftir jafnmarga leiki. Guðbjörg Gunnarsdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir spila einnig með Avaldsnes sem er nýliði í deildinni.

Þá var Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir í liði Arna-Björnar sem gerði 1-1 jafntefli gegn Amazon-Grimstad á heimavelli. Gunnhildur og félagar hafa einnig fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×