Bílar

Mexíkó nýja draumaland ofurbílanna

Finnur Thorlacius skrifar
Ferrari bíll
Ferrari bíll
Kína hefur verið mest vaxandi ákvörðunarstaður dýrra ofurbíla á undanförnum árum, en viðskiptablaðið Forbes spáir því að mikill vöxtur verði í eftirspurn eftir þannig bílum í Mexíkó á næstu árum. Fyrir stuttu barst Ferrari 15 pantanir í Ferrari LaFerrari bílinn frá Mexíkó og á Ferrari von á því að það marki einungis upphafið í góðri eftirspurn þaðan í bíla þeirra.

Ýmis teikn eru á lofti sem styðja þessar væntingar. Efnahagurinn í Mexíkó er á lóðréttri uppleið og milljónamæringum fjölgar dag frá degi. Stjórnmálaástand er stöðugt, hagvöxtur mikill, menntun sífellt batnandi og nálægðin við Bandaríkin hefur gert viðskiptalífinu gott. Því horfa bílaframleiðendur dýrra bíla hýru auga til landsins sunnan við Bandaríkin. Mörg framleiðslufyrirtæki hafa á undanförnum árum reist verksmiðjur í Mexíkó og eru bílaframleiðendur ekki síst þar á meðal.






×