Bílar

Harðákveðinn ökumaður

Finnur Thorlacius skrifar
Ákveðni ökumanna er misjöfn og fátt stöðvar suma. Líklega myndu flestir ökumenn stöðva för eftir fyrsta árekstur, en aðrir ekki eftir þrjá.

Í þessu myndskeiði sést ökumaður Vespu einnar í Kína aka fyrst á sendibíl og með farþega aftaná. Báðir kastast þeir af hjólinu en ökumaðurinn rífur upp hjólið og ekur beint á næsta bíl.

Aftur dettur hann, en stígur upp og leggur hratt af stað og endar beint framan á vöruflutningabíl af miklum þunga. Það dugar honum ekki, heldur er brátt lagt aftur af stað út í opinn dauðan, sem endar reyndar þremur metrum síðar er hann og Vespan enda ofan í djúpu ræsi og hverfa sýnum.

Það toppar kannski sjálfseyðingarhvöt mannsins að hann var ekki með hjálm. Engu að síður slapp hann víst með minniháttar meiðsl.







×