Bílar

Hittnir boltastrákar á Fiat bílum

Finnur Thorlacius skrifar
Þeir hljóta að hafa skemmt sér konunglega snillingarnir sem hér sjást, en þeir höfðu til afnota heilan flugvöll, þrjá Fiat 500 Abarth, körfuboltaspjöld og ekki síst tvo frábæra áhættuakstursmenn.

Það eru nokkrir drengir sem eru í aðalhlutverki í myndskeiðinu hér að ofan, en þeir kalla sig Dude Perfect og eiga nokkur afar vinsæl myndskeið á þeim ágæta vef.

Þeir eru engir aukvisar með hinar ýmsu gerðir bolta og hitta í mark eða um borð í bíla á ferð af ótrúlega færi. Hreinlega má efast um það að sumt sem þarna sést hafi gerst í alvörunni og sé ekki lagað til eftirá, en sem fyrr, sjón er sögu ríkari. 







×