Fótbolti

Mark Gunnars Heiðars dugði ekki til sigurs

Gunnar Heiðar fagnar.
Gunnar Heiðar fagnar.
Það telst varla til tíðinda lengur að Gunnar Heiðar Þorvaldsson skori fyrir Norrköping. Hann gerði það enn eina ferðina í kvöld.

Því miður fyrir lið hans þá dugði markið ekki til sigurs því Norrköping tapaði, 1-2, á heimavelli gegn IFK Göteborg.

Göteborg komst í 0-2 áður en Gunnar Heiðar skoraði sitt áttunda mark í deildinni í vetur. Mark hans kom 18 mínútum fyrir leikslok.

Norrköping er í níunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar en Göteborg komst í annað sætið. Hjálmar Jónsson lék allan leikinn fyrir Göteborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×