Bílar

Fékk loks að kaupa mótorhjól og lét lífið eftir 5 km

Finnur Thorlacius skrifar
Barry heitinn hafði lengi dreymt um að eignast Harley Davidson
Barry heitinn hafði lengi dreymt um að eignast Harley Davidson


Barry Strang hafði nauðað í konu sinni að hann mætti kaupa sér mótorhjól í 38 ár, en án árangurs. Þegar hann fyrir stuttu var kominn á eftirlaun, lét kona hans loks undan. Barry fór beinustu leið, ásamt konu sinni, í Harley Davidson söluumboðið í heimabæ sínum í Wyoming og keypti sér uppáhalds hjólið sitt.

Hjónin mæltu sér síðan mót hálftíma síðar í kasínói bæjarins, hún á heimilisbílnum og hann á nýja mótorhjólinu sínum. Barry komst þó aldrei á áfangastað, því eftir um 5 kílómetra akstur lenti hann í árekstri við flutningabíl, endaði undir honum og dó samstundis.

Kona Barry hafði neitað honum um kaup á mótorhjóli öll þessi ár með þeim rökstuðningi að það væri alltof hættulegt. Það reyndust orð að sönnu og enn ein sönnun þess að eiginmenn gera oft rétt með því að fara að ráðum eiginkvenna sinna.






×