Bílar

Hæsta bílverð á uppboði

Finnur Thorlacius skrifar
Mercedes Benz W196R sem Juan Manuel Fangio ók
Mercedes Benz W196R sem Juan Manuel Fangio ók
Aldrei hefur fengist hærra verð fyrir bíl á uppboði en þennan sem hér sést. Bíllinn er keppnisbíll Juan Manuel Fangio frá árinu 1954 sem hann keppti á í Grand Prix mótaröðinni og er af gerðinni Mercedes Benz W196R. Fyrir þennan bíl fengust 3,65 milljarðar króna á Bonhams uppboðinu í bílahátíðinni Goodwood Festival of Speed í Bretlandi í gær.

Verð hans sló þó ekki út hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir bíl í einkasölu, 4,3 milljarða króna. Það verð var greitt fyrir 1962 árgerðina af Ferrari GTO sem byggður var fyrir Sterling Moss og áttu þau viðskipti sér stað í fyrra.  Þetta há verð sem greitt var í gær fyrir Mercedes bílinn er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir Formula 1 bíl og líka fyrir nokkurn Mercedes Benz bíl.

Hæsta verð sem fyrir viðskiptin í gær hefur verið greitt fyrir bíl á uppboði var fyrir frumgerð Ferrari 250 TR árgerð 1957, en sá bíll fór á rétt rúma tvo milljarða króna árið 2011. 






×