Fótbolti

Benitez byrjar vel með Napoli - öll úrslitin í Meistaradeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/AFP
Fyrsta umferðin í riðlakeppni Meistaradeildarinnar lauk í dag og þar vakti mesta athygli 2-1 sigur hjá Basel á Chelsea á Stamford Bridge. Lionel Messi skoraði þrennu í 4-0 sigri Barcelona á Ajax og Arsenal sótti tvö stig til Marseille. Schalke og Atletico Madrid unnu bæði góða sigra og AC Milan bjargaði sér undir lokin á móti skoska liðinu Celtic.

Rafa Benitez stýrði Napoli til 2-1 sigurs á Borussia Dortmund en þýska liðið fór alla leið í úrslitaleikinn í fyrra. Roman Weidenfeller, markvörður Dortmund, fékk rautt spjald í lok fyrri hálfleiks og áður hafði þjálfarinn Jurgen Klopp verið rekinn upp í stúku.

Lucho González tryggði Porto 1-0 útisigur á FH-bönunum í Austria Vín frá Austurríki. Atletico Madrid vann 3-1 sigur á Zenit í sama riðli. Schalke byrjar vel í Meistaradeildinni í ár en liðið vann 3-0 heimasigur á Steaua Búkarest i kvöld.

Argentínumaðurinn Lionel Messi sýndi enn á ný snilli sína í Meistaradeildinni þegar hann skoraði þrennu í 4-0 sigri á Ajax. Kolbeinn Sigþórsson átti ágætan leik með Ajax en lét verja frá sér víti í stöðunni 4-0.  AC Milan vann 2-0 sigur á Celti í sama riðli en bæði mörkin komu á síðustu tíu mínútunum.

Svissneska liðið Basel kom öllum á óvart með því að vinna 2-1 sigur á Chelsea á Stamford Bridge í kvöld og riðlakeppni Meistaradeildarinnar byrjar því ekki vel fyrir lærisveina Jose Mourinho. Basel lenti undir í leiknum en tryggði sér öll stigin með tveimur mörkum með ellefu mínútna millibili í seinni hálfleik.

Theo Walcott og Aaron Ramsey tryggðu Arsenal 2-1 útisigur á franska liðinu Marseille í fyrsta leik liðanna í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld en þetta var frábær sigur fyrir lærisveina Arsene Wenger.



Úrslit og markaskorarar í Meistaradeildinni í kvöld:

E-riðill

Schalke - Steaua Búkarest    3-0

1-0 Atsuto Uchida (67.), 2-0 Kevin-Prince Boateng (78.), 3-0 Julian Draxler (85.)

        

Chelsea - Basel    1-2

1-0 Oscar (45.), 1-1 Mohamed Salah (71.), 1-2 Marco Streller (82.)

    

F-riðill

Marseille - Arsenal    1-2    

0-1 Theo Walcott (64.), 0-2 Aaron Ramsey (84.), 1-2 Jordan Ayew, víti (90.+3).

Napoli - Borussia Dortmund    2-1

1-0 Gonzalo Higuaín (29.), 2-0 Lorenzo Insigne (67.), 2-1 Sjálfsmark (87.)

    

G-riðill

Austria Vín - Porto    0-1    

0-1 Lucho González (55.)

Atletico Madrid - Zenit St. Petersburg    3-1    

1-0 Miranda (40.), 1-1 Hulk (58.), 2-1 Arda Turan (64.), 3-1 Léo Baptistão (80.)

H-riðill

AC Milan - Celtic    2-0    

1-0 Cristian Zapata (81.), 2-0 Sulley Muntari (86.)

    

Barcelona - Ajax    4-0    

1-0 Lionel Messi (21.), 2-0 Lionel Messi (55.), 0 Gerard Piqué (69.), 4-0 Lionel Messi (75.).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×