Golf

Ólafur Björn á góðan möguleika

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólafur Björn Loftsson.
Ólafur Björn Loftsson. Mynd/GSÍmyndir.net
Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum, lék þriðja hringinn á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í dag á 72 höggum eða á einu höggi yfir pari. Hann deilir 20. sæti ásamt fimm öðrum kylfingum.

Leikið er á Golf d‘Hardelot vellinum í Frakklandi. 24 bestu kylfingarnir komast á næsta stig úrtökumótsins. Ólafur Björn þarf að halda vel á kylfunni á morgun til þess að tryggja sér sæti í þeim hópi.

Örfáir kylfingar eiga eftir að ljúka leik þegar þetta er skrifað. Þeir eru þó hærra skrifaðir en Ólafur Björn sem stendur og mun staða hans því ekki breytast á stigatöflunni.

Stöðuna má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×