Fótbolti

Steinþór fjórði Íslendingurinn hjá Viking

Steinþór er hér kominn í búning Viking.
Steinþór er hér kominn í búning Viking.
Steinþór Freyr Þorsteinsson skrifaði nú í morgun undir samning við norska úrvalsdeildarfélagið Viking sem er að verða að Íslendinganýlendu.

Fyrir hjá félaginu eru þeir Indriði Sigurðsson, Björn Daníel Sverrisson og Jón Daði Böðvarsson. Íslendingarnir eru þar með orðnir fjórir hjá Viking.

Hann kemur til félagsins frá Sandnes Ulf þar sem Steinþór hefur gert það gott undanfarin þrjú ár.

„Ég er klár í nýtt ævintýri. Viking er stórt félag og þetta verður spennandi," sagði Steinþór eftir undirskriftina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×