Golf

McIlroy í toppbaráttunni í Abu Dhabi

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Norður-Írinn Rory McIlroy er á meðal efstu manna eftir annan keppnisdag á Abu Dhabi Championship mótinu sem fram fer á Evrópumótaröðinni í golfi. McIlroy er í fjórða sæti á samtals sjö höggum undir pari en hann lék annan hringinn á 67 höggum eða fimm höggum undir pari.

Spánverjinn Rafael Cabrera-Bello og Skotinn Lee Craig eru jafnir í efsta sæti á níu höggum undir pari. Englendingurinn Danny Willett kemur höggi þar á eftir.

Það gekk hvorki né rak hjá McIlroy í þessu móti á síðasta ári en þá komst hann ekki í gegnum niðurskurðinn. „Þegar þú hefur sjálfstraust með drævernum þá tekur það mikla pressu af þér. Ég setti niður nokkur góð pútt á seinni níu holunum og tel mig eiga mjög góðan möguleika á sigri,“ sagði McIlroy.



Phil Mickelson komst í gegnum niðurskurðinn í Abu Dhabi.Mynd/AP
Mickelson örugglega áfram

Bandaríkjamaðurinn Phil Mickelson komst í gegnum niðurskurðinn eftir að hafa leikið á 70 höggum í dag. Hann er í 40. sæti þegar mótið er hálfnað.

Spánverjinn Sergio Garcia gerði einnig vel með að komast áfram en hann lék á 68 höggum í dag og bætti sig um átta högg frá því í gær. Luke Donald og Martin Kaymer, sem báðir hafa náð efsta sætinu á heimslistanum, eru einnig komnir áfram. Svíinn Henrik Stenson er hins vegar úr leik eftir að hafa leikið á pari í dag.

Abu Dhabi Championship mótið er í beinni útsendingu á Golfstöðinni. Bein útsending frá þriðja hring hefst kl. 09:00 í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×