Golf

Ólafur Björn í góðum gír í Orlando

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólafur Björn hitti goðsögnina Arnold Palmer á dögunum.
Ólafur Björn hitti goðsögnina Arnold Palmer á dögunum. Mynd/Fésbókarsíða Ólafs Björns
Seltirningurinn Ólafur Björn Loftsson lék fyrsta hringinn á NCA mótaröðinni í Orlando í Flórída í dag á 68 höggum eða á þremur höggum undir pari. Hann deilir 11. sæti fjórum höggum á eftir efsta manni.

Mótið er hið fyrsta hjá Ólafi í nokkurn tíma. Hann hefur æft stíft undanfarnar vikur bæði vestanhafs og heima á Íslandi í desember. Ólafur hefur leik í fyrramálið klukkan 7:57 að staðartíma eða 12:57 að íslenskum tíma.

Ólafur gerði upp fyrsta hringinn á Fésbókarsíðu sinni eins og sjá má hér að neðan. Hér má svo sjá stöðuna að loknum fyrsta hring.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×