Golf

Walker sigraði í þriðja sinn á leiktíðinni

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Vísir/AP
Dustin Johnson varð annar á Pebble Beach í gær.Vísir/AP
Jimmy Walker hrósaði sigri á AT&T Pebble Beach National mótinu sem lauk í gær á PGA-mótaröðinni. Þetta er þriðji sigurinn á tímabilinu hjá Walker sem hefur leikið sérlega vel frá því í haust. Hann lék hringina fjóra á samtals 11 höggum undir pari og varð einu höggi betri en þeir Dustin Johnson og Jim Renner.

Walker sigraði á sínu fyrsta móti á PGA-mótaröðinni síðastliðið haust á Frys.com Open mótinu og fagnaði svo aftur sigur á Sony Open mótinu í janúar. Hann er að leika mjög vel því hann hefur unnið þrjú af síðustu átta mótum á mótaröðinni. Þetta er þriðji sigur hans á leiktíðinni sem hófst í október.

Dapur lokahringur

Litlu munaði að Walker missti sigurinn úr höndunum. Hann hafði sex högga forystu fyrir lokahringinn en tryggði sér sigurinn með pari á 18. holu.

„Þetta var gott sjónvarp, ekki rétt,“ sagði Walker að móti loknu og átti þar við að honum hefði tekist að gera mótið spennandi með lakri spilamennsku á lokahringnum. Hann lék hringinn á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Johnson blandaði sér hins vegar í baráttuna um sigurinn með því að leika lokahringinn á 66 höggum.

Fyrir sigurinn fékk Walker um 150 milljónir króna í sinn hlut og er orðinn efstur á FedEx-stigalistanum. Hér að neðan má sjá samantekt frá lokahringnum og einnig viðtal við Walker. Mótið var í beinni útsendingu á Golfstöðinni en sjónvarpsstöðin er með sýningarrétt frá helstu mótaröðum heims.

Lokastaðan í mótinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×