Fótbolti

Hjálmar og félagar í Gautaborg byrja á sigri

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hjálmar Jónsson var að vanda í liði IFK Gautaborgar.
Hjálmar Jónsson var að vanda í liði IFK Gautaborgar. Vísir/AFP
Hjálmar Jónsson og félagar hans í IFK Gautaborg unnu sterkan útisigur á AIK á Vinavöllum í Stokkhólmi í kvöld, 2-0, í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

LasseVibe kom gestunum yfir á 14. mínútu leiksins og fjórum mínútum fyrir leikslok bætti Malick Mané við öðru marki, 2-0.

Hjálmar spilaði allan leikinn fyrir Gautaborg en Hjörtur Logi Valgarðssson er búinn að yfirgefa félagið og spilar nú með Sogndal í Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×