Enski boltinn

Þrír Íslendingar í byrjunarliði Kristianstad

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sif Atladóttir lék allan leikinn fyrir Kristianstad í dag.
Sif Atladóttir lék allan leikinn fyrir Kristianstad í dag. Vísir/Vilhelm
Kristianstads og Vittsjö GIK gerðu markalaust jafntefli í eina leik dagsins í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sif Atladóttir, Elísa Viðarsdóttir og Guðný Björk Óðinsdóttir voru allar í byrjunarliði Kristianstads í dag. Elísa fór af velli á 42. mínútu og Guðný í uppbótartíma. Þær voru allar valdar í íslenska landsliðið sem mætir Danmörku og Möltu í undankeppni HM 2015 seinna í mánuðinum.

Kristianstad, sem Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar, situr í 7. sæti deildarinnar með 11 stig, en Vittsjö er tveimur sætum neðar með sjö stig.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×