Golf

Guðrún Brá efst á stigalista Eimskipsmótaraðarinnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili. Mynd/GSÍmyndir
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili er efst á stigalista Eimskipsmótaraðarinnar eftir að Íslandsmótinu í holukeppni, Securitas-mótinu, lauk í gær á Hvaleyrarvelli.

Það er mjög jöfn keppni hjá fjórum efstu kylfingunum og munar ekki mörgum stigum á fyrstu fjórum sætunum. Tinna Jóhannsdóttir, GK, sem fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í holukeppni á sunnudaginn í fyrsta sinn á ferlinum, er í 11. sæti á listanum.  

Guðrún Brá varð önnur á fyrstu tveimur mótum tímabilsins, Nettómótinu á Hólmsvelli í Leiru og Egils Gull mótinu á Strandarvelli á Hellu.Hún varð sjötta á Símamótinu á Hamarsvelli í Borgarnesi og fjórða á Íslandsmótinu í holukeppni.

Signý Arnórsdóttir úr GK, sem hefur fagnað stigameistaratitlinum á Eimskipsmótaröðinni í kvennaflokki undanfarin þrjú ár er í fimmta sæti á listanum. Signý hefur verið stigameistari fjórum sinnum á síðustu fimm árum.

Það eru aðeins þrjú mót eftir, Íslandsmótið höggleik í júlí og síðan fara fram tvö mót í ágúst, fyrst á Garðavelli og lokamótið fer fram á Akureyri.   

Sunna Víðisdóttir úr GR er í öðru sæti á stigalistanum en hún hefur sigrað á tveimur mótum á Eimskipsmótaröðinni, Nettómótinu og Símamótinu. Berglind Björnsdóttir úr GR er þriðja en hún sigraði á Egils Gull mótinu á Strandarvelli á Hellu.

Staða efstu kylfinga á stigalista Eimskipsmótaraðarinnar er þessi:

1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 4537.50 stig

2. Sunna Víðisdóttir, GR 4432.50 stig

3. Berglind Björnsdóttir, GR 4327.50 stig

4. Karen Guðnadóttir, GS 4253.50 stig

5. Signý Arnórsdóttir, GK 3651.00 stig

6. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 3201.00 stig

7. Þórdís Geirsdóttir, GK 2801.00 stig

8. Heiða Guðnadóttir, GKj. 2449.56 stig

9. Sara Margrét Hinriksdóttir, GK 2367.50 stig

10. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 2208.50 stig

11. Tinna Jóhannsdóttir, GK 2000.00 stig

12. Særós Eva Óskarsdóttir, GKG 1865.00 stig

13. Ingunn Einarsdóttir, GKG 1850.00 stig

14. Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG 1651.25 stig

15. Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK 1512.50 stig

16. Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, GA 1415.00 stig

17. Hildur Rún Guðjónsdóttir, GK 1377.50 stig

18. Helga Kristín Einarsdóttir, NK 1040.00 stig

19. Hansína Þorkelsdóttir, GKG 1010.00 stig

20. Halla Björk Ragnarsdóttir, GR 957.50 stig


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×